Velkomin á síðu Lútherskrar hjónahelgar á Íslandi.

Í Lútherskri hjónahelgi felst að hjón dvelja eina helgi fjarri heimili og fjölskyldu og taka þátt í skipulagðri dagskrá til að efla tjáskiptin í hjónabandinu. Undanfarin ár hafa helgarnar verið haldnar á Hótel Sögu.

Markmið helgarinnar er að skapa hjónunum nýja möguleika á að auðga líf sitt með tjáningu tilfinninga sinna hvoru við annað og við samferðamenn sína. Lúthersk hjónahelgi er hvorki trúarsamfélag né söfnuður, en er byggð á kristilegum grunni. Ef þið hafið áhuga á að afla ykkur frekari upplýsinga vinsamlegast hafið samband við forsvarshjón. Eins viljum við benda ykkur á kynningarbæklinginn sem er hérna til hliðar.

Guðrún Dóra Guðmannsdótttir
sr.Magnús Björn Björnsson
 

Dóra og Magnús

Valdís Ósk Jónasdóttir
Sigþór Magnússon

 Hægt er að skrá sig beint með því að senda tölvupóst á skraning@hjonahelgi.is


Velkomin á kynningarfund í Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20.30